Jæja þar sem ég er svefnvana og Fanney svarar ekki símanum sínum,
og það eru örfáir á msn, þá ákvað ég að blogga.
Ég var að skoða gamlar blogg síður, og fullt af gömlu drasli frá
mér og Fanney, haha við vorum/erum svo skrýtnar, og það er svo
gaman að sjá svona. Við vorum sko bestustubestu vinkonur á
jörðinni, og við gistum saman eigilega allar nætur og fengum aldrei
nóg. Núna erum við ennþá bestustubestu en erum samt ekki
alveg jafn samrýndar og við vorum. Svo fann ég voða sætt sem
ég ætla að setja
Elsie er best í heimi
Ég elska hana alveg
svooooooona mikið enda er hún líka langbesta vinkona
mín
Við vorum límdar saman þegar við vorum litlar og það
má segja að okkur hafi ekkert leiðist, endalaust sem við getum
hlegið að því hvað við vorum vitlausar
Við erum reyndar
soldið samvaxnar enn í dag, gistum saman nánast hverju einustu nótt
og þekkjum hvor aðra betur en okkur sjálfar
Elsie er með stærsta hjarta í heimi og ég veit ekki
hvar ég væri án hennar. Bara gaman að hlaupa yfir á nóttunni á
náttfötunum og hlægja solið mikið, sérstaklega að því sem enginn
annar hlær að.
Við erum soldið spes, við eigum til að segja akkurat
sama hlutinn á nákvæmlega sama tíma, svona eins og við séum búnar
að vera giftar í hundrað ár
Hún er sú eina sem skilur mig alltaf
og þekkir mig alveg út og inn haha
Hún er ólofuð stelpan en er þó með þá nokkra í
vasanum enda sætasta stelpa sem ég þekki
Drop it like it's hot, OK, ristað brauð með mysingi,
Sexy gel og olía, blá mynd, höggormafélag, ekki segja ömmu, bóbó,
kerti, fiðrildastrákur, föst í fellihýsi, með gröfu á efitr sér á
eyraveginum, tetris, yfir á náttfötunum, sápa, Ó HVAR ERTU,
listaverkið "Skólinn", Nóatún, Júrovisjón keppnin, Latibær,
lullast, "illa innræta kvikyndi", "ekki treysta gömlum bragðaref",
SEM ÉG HEITI TJÁNINGARMAÐURINN, Siffi Dúdda, Tjörvarar,
takkaskólaus, ropópera, heimildarmynd um hunda, kötturinn minn, rok
á brúnni, Elsie skríðandi á Austurveginum, Donkey kong, King kong,
skrýtni, græni kæró......Í stuttu máli þá eigum við okkur okkar
sögu hahhaha
Það eru sumir sem gera heiminn sérstakan bara með
því að vera í honum, þú ert svona sumir
Elska þig í ræmur og mundu að ég hjóla EKK-I!
Æjj mér fannst þetta svo sætt, mér vöknaði um augun.
Þú ert líka best Fanney mín ;**
ætli ég reyni ekki að sofa
www.blog.central.is/elsie
sjá öll kommentin okkar haha